Við vitum hvað gerðist þegar Ólafur Ragnar fékk á baukinn í skaupinu, hann hætti að skrifa undir lög.
Svo er það þetta með "politically correct". Það var ekkert fyndið að gera grín að fjöldamorðunum í Noregi, mér fannst það ekki, mín "politically corectedness" sagði mér það.
Þegar ég horfði svo á atriðið með Sjálfstæðisflokknum og Bjarna Ben - alveg frá ræðunni á landsfundinum, og tárunum yfir Geir, sem voru kannski ekki tár og þar til yfir lauk fannst mér það í byrjun nokkuð fyndið. Eða svolítið fyndið. En þegar komið var baksviðs og söngurinn hófst þá kikkaði mitt "politically correctedness" inn. Mér fannst þetta ekkert fyndið, og hugsaði nei þetta er nú ekki hægt - þegar ég til dæmis sá flokksmann fá sér kókið í nös. Og ég svo sem hugsaði þarna á þessum síðasta degi ársins að þetta væri ekkert grín, ekki heldur háð, heldur bara gagnrýni. Ekki skaup. Og þar af leiðandi rangt. Ekki "politically correct".
En afhverju má þá ekki taka Sjálfstæðisflokkinn í gegn? Ekki er hann í upphaldi hjá mér, enda tel ég að flokkurinn, stefnan og forystumenn hans beri langmesta ábyrgð á hruninu. Langmesta.
Og kannski hefur það ekki verið PC að fara jafn háðulega með Sjálfstæðisflokkinn og gert var nú í áramótaskaupinu. En hvort sem manni finnst þetta hafa verið fyndið eða ekki þá er ljóst að það felst mikil ádeila í atriðinu, það er gagnrýnið. Það mátti ekki fyrir hrun að minnsta kosti, það var ekki PC.
En núna er sem sé sá ís greinilega brotinn.
Það er gott. Mjög gott.
-
0 skilaboð:
Sendu inn athugasemd