sunnudagur, 22. janúar 2012

Jóhanna getur og á kannski að rjúfa þing

Jóhanna með Evu Joly. Hún myndi ekki vilja hætta við.






Ef það lítur út fyrir að þingsályktunartillaga um að vísa frá ákærum á hendur Geir Haarde verði samþykkt á Alþingi á Jóhanna Sigurðardóttir þann möguleika að rjúfa þing og boða til kosninga.

Tillagan á núna eftir að fá þinglega meðferð í nefnd áður en til seinni umræðunnar um hana kemur. Ef allt væri eðlilegt myndi það taka að minnsta kosti 4-6 vikur og líklega jafnvel 2-3 mánuði, jafnvel fjóra. Það væri eðlilegt.

En það er ekkert eðlilegt í þessu máli og útlit fyrir þrýsting á þing um að vinna hraðar að þessu máli en öllum öðrum. Og það er ekki annað að sjá en að þingforseti sé sérstaklega áhugasamur um að þetta geti allt saman gerst á "nó tæm and nó".

Og það má spyrja sig hvers vegna? En það er reyndar annað mál.

Ef Jóhönnu og Steingrími tekst ekki að tryggja sér meirihluta fyrir því að fella tillöguna finnst mér að Jóhanna ætti að íhuga það alvarlega að rjúfa þing.

Rjúfa þing áður en en þingsályktunartillagan kæmi til annarrar umræðu. Ákæran yrði þannig ekki dregin til baka fyrr en þá nýtt Alþingi kæmi saman og nýskipað þing tæki ákvörðun um framhaldið. Eða gerði hreinlega ekki neitt.

Landsdómur myndi þá halda sínu striki og á næstu vikum, samhliða því að menn væru í kosningabaráttu hæfust vitnaleiðslur fyrir Landsdómi og kjósendur gætu þá íhugað framgöngu stjórnmálamannann fyrir hrun og í hruninu meðan þeir ákvæðu hverja þeir vildu helst ljá atkvæði sitt.

Myndin er tekin af vef forsætisráðuneytisins.
-

3 skilaboð:

Skorrdal sagði...

Það má alls ekki; þá missir einhver völdin og annar gæti fengið þau! Uss uss uss... Svoleiðis gerir maður ekki í þykjustu lýðveldum.

Nafnlaus sagði...

Það er mikilvægt að kjósendur setji landsdómsmálið ekki í gullfiskaminnið

Árni Páll Árnason
Össur Skarphéðinsson
Kristján L. Möller
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Ásta R. Jóhannesdóttir

Ögmundur Jónasson
Guðfríður Lilja
Jón Bjarnason

eru gúanó sem vinstri menn þurfa að þrífa út af þingi í næstu kosningum.

Það má ekki rjúfa þing fyrr en fiskveiðistjórnunarmálið og stjórnarskrármálið eru frágengin með sóma.

Birgir Björgvinsson sagði...

4FLokkurinn er allur "gúanó" og þarf að spúlast út af þingi.