þriðjudagur, 17. janúar 2012

Bréf til Ögmundar

Ögmundur, nú er ég satt að segja sorgmæddur. Segðu mér til hvers ég stóð á Austurvelli laugardag eftir laugardag ef ekki til þess að krefjast þess að það yrði farið ofan í saumana á því af hverju allt hrundi? Til að krefjast breytinga? Nú ætlar þú að taka það af okkur sem þar stóðum, ætlar að stöðva Landsdóm, stöðva að það verði farið ofan í saumana á ábyrgð mannsins sem var forsætisráðherra þegar ósköpin dundu yfir, formanns flokksins sem stýrði landinu í 18 ár þar til við fórum fram af.

Um daginn var framið rán í úraverslun, þrír af fjórum þjófum sluppu úr landi og heimaland þeirra vill ekki (getur ekki) framselt þá. Þeir sleppa. Á þá að láta þann sem var gómaður hér á landi sleppa? Á ekki að rétta yfir honum? Er það réttlæti?

Ég verð að viðurkenna að maður er við það að gefast upp. Kannski er bara best að við förum aftur í gamla farið. Sættum okkar bara við að Ísland sé þannig, hættum að taka á málum. Hættum að reyna að komast að því hvað fór úrskeiðis, gefumst upp á því að læra af misstökunum. Opnum aldrei aftur skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Maulum okkar iðnaðarsalt og höfum uppi möntruna, Ísland best í heimi. Lokum augunum.

Það eru þín skilaboð til mín í dag.

Sorglegt.

kveðja
Pétur
-

4 skilaboð:

Nafnlaus sagði...

Tekk undir hvert orð þitt. Það má ekki gugna á þessu.

Nafnlaus sagði...

Eftir spillta einkavæðingu bankanna logaði mælaborðið í rauðum ljósum;

2006 erlendir bankar hætta að veita þeim íslensku fyrirgreiðslu
2007 hagfræðingar vara við stærð og starfsemi islensku bankanna
2008 seðlabankastjóri bretlands býður aðstoð við að koma böndum á íslenska bankakerfið

Viðbrögð skipstjórans GHH voru ekki ósvipuð og ítalska skipstjórans sem hvolfdi skipi sínu í glanna siglingu. Láta eins og ekkert sé að og afþakka alla aðstoð, vona að hlutirnir reddist þ.a. hægt sé að halda andlitinu. Hvorugum varð að ósk sinni og hlutirnir redduðust ekki.

Munurinn á GHH og ítalska skipstjóranum er að sá ítalski hefur ekki ríkisborgararétt í Forboðnu borginni enda er hann kominn í fangelsi.

Nafnlaus sagði...

Til hvers ertu í þessu starfi viltu ekki hleypa heilbrigðu fólki að?! Ég verð nefnilega að játa að núna er ég farinn að efast um andlegt heilbrigði þitt ef satt skal segja!! Til hvers haldið þið og núna þú að þið hafið verið kosinn á þing?! Til að hreinsa til þú ert nú ljóti bullustampurinn manngrýla!! Þetta eina tiltekna mál er hægt að líta á sem einn hluta endurreisnar og þessi baggi frá og snúa sér að næsta sem ætti að vera að koma á almennilegum lögum kríngum ykkur og þar ert þú núna í aðalhlutverki núna!! Þú veist ekki hvað þú komst mér í mikið uppnám núna lúsablésinn þinn ég kaus þig meðal annarra á þing og núna ætlar þú að bregðst fólkinu sem kaus þig í góðri trú!! Sem þú ætlar að rústa því sem þó er reynt að gera af veikum mætti!! Þetta er táknrænt að senda manninn sem var fjármálaráðherra og forsætisráðherra í þessum ónýtu ríkisstjórnum hver ætti frekar að vera fyrir dómi?? Auðvitað ætti allur þessi landráðalýður að vera fyrir dómi en það er ekki í boði núna þar ættir þú að vinna að breytingum á þessu kerfi til þess eru þarna ég vil sjá þig drúlla þér úr pólitík ef þú heldur þessu til streytu!!? Og hleypir þá almennilegu fólki að við höfum ekkert og minna en það að gera við svona rugludalla eins og þig!! Burtu með þig lúsablésinn þinn!! Kveðja. Jóhann Björn Jóhannsson(Sveinbjörnssonar)

Nafnlaus sagði...

Ég held að Ögmundur, eins og alltof margir af þessum þaulsetnu stjórnmálamönnum okkar, sé þarna ennþá vegna þess að við gleymum alltof fljótt. Hann Öggi var t.d. fyrir allmörgum árum í farabroddi þegar vertrygging launa var afnumin og mismunur launa og lifikostnaðar fór fyrst á fullt. Öggi er búinn að gleyma því að stjórnmálamenn eru kosnir, ekki sjálfsagðir. Þeir eru þarna FYRIR fólkið, kosnir AF fólkinu. Ekki til að hygla vinum sínum og stuðningsaðilum og til að sitja að ríkis spenanum. Það þarf að skipta í minnst 3 kynslóðum stjórnmálamanna ÚT úr kerfinu og taka upp 100x harðara eftirlitskerfi á þá, Að ekki sé nú minnst á að herða þarf refsirammann utan um fólk sem er treyst ti lað sjá um öll egg þjóðarinnar og svíkur síðan það traust eins og t.d. Árni Johnsen. Allt atferli þessa fólks er orðin hrein svívirða við fólkið í landinu.