Ég bara hreinlega átti ekki til orð þegar ég sá að Advice hópurinn hafði sent frá sér tilkynningu þar sem meðal annars var ýjað að því að ríkisstjórnin væri ekki treystandi til að standa vörð um hagsmuni Íslands fyrir Efta-dómstólnum í Icesave málinu. Eiginlega bara duttu mér allar dauðar lýs af höfði og meira til.
Sjá frétt um málið.
Einhvern veginn hefði ég haldið að það fólk sem ber mikla ábyrgð á því að málið er nú fyrir dómstóli en ekki frágengið í samkomulagi við nágrannaþjóðir okkar hefði haft það vit að segja sem minnst á þessu stigi málsins. Fólkið sem ber sína ábyrgð á því að Icesave skuli enn þá vera í umræðunni. Fólkið sem sagði samt fyrir síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið að ef fólk segði nei þá myndi Icesave hverfa.
Icesave gerði það ekki, þvert á móti. Við í Áfram-hópnum reyndum að koma hinu á framfæri, að það myndi leysa málið til frambúðar að semja um það, að það væru bestu hagsmunir Íslands að semja um málið og ekki taka áhættuna á því að það myndi hafna fyrir dómstólum. Að það væri ekki skynsamlegt að taka hundruð milljarða króna áhættu.
En það var ekki hlustað á það, ekki af nægilega mörgum að minnsta kosti. Við fengum meira að segja skömm í hattinn fyrir að sýna áhættuna í líki hákarls. Af því að við máttum bara nota skynsemina meðan hinir spiluðu á allar mögulegar og ómögulegar tilfinningar. Oft á tíðum óheiðarlega fannst mer. Og mér fannst þeir komast upp með það að höfða til tilfinninga án þess að sannleikurinn eða skynsemin þyrfti endilega að fylgja með. En það er annað mál. Fróðlegt til eftir á skoðunar.
En hefur einhver séð Áfram-hópinn kalla núna á fjölmiðla eða senda frá sér fréttatilkynningu þess efnis að hópurinn hefði nú haft rétt fyrir sér? Auðvitað ekki.
Menn hafa kallað eftir því að við stöndum saman í stað þess að fara í Icesave-skotgrafirnar. En þá kemur Advice hópurinn fram og kastar skít í það fólk sem standa verður vörð um hagsmuni okkar. Af því að það er starf þess, ekki það að þau hafi valið að fara þessa leið. Þau vildu sannanlega aðra leið. Það þýðir ekki að menn ætli ekki að gera sitt allra besta.
Það er líka ýjað að því að ríkisstjórnin hafi ekki mikinn vilja til að vinna málið, að ríkisstjórnin vilji tapa málinu. Hvernig getur nokkrum manni dottið slíkt í hug? Ég á bara ekki til orð, satt best að segja. Og fyrir nú utan að besta leiðin til að "vinna" mál fyrir dómstólum er að forða því að mál lendi þar, það var kostur í þessu máli en hann var ekki valinn.
En að koma núna fram og horfa framhjá eigin orðum en saka aðra (ríkisstjórnina) um að hreinlega vinna gegn Íslandi er með ólíkindum alveg hreint.
Hvílíkur dónaskapur, hvílík ósvífni.
Ja svei, ja svei.
-

1 skilaboð:
Í icesave-hópnum eru 4 lögmenn en enginn þeirra er sérfræðingur í evrópurétti. Annars er hópurinn samansettur af hagfræðingum og verkfræðingum.Það er afar ólíklegt að advice hópurinn hafi haft mikil áhrif með málflutningi sín. Þjóðin kaus og nú hefjum við dómstólaleiðina. Það er lágkúrulegt að reyna að gera utanríkisráðherra tortryggilegan eða jafnvel alla ríkisstjórnina. Hafi einhver haft trú á heiðarleika þessa hóps hefur sú trú horfið.
Sendu inn athugasemd