mánudagur, 12. desember 2011

Nei-sinnar vakna snemma



Það er gott að sjá að nei-sinnar þessa lands taka daginn snemma. Lesa Fréttablaðið í bítið ef ekki fyrr. Og eru fljótir að blogga. Það verður ekki af þeim tekið. En þetta getur maður séð á Blogggáttinni sbr. myndina hér fyrir ofan.

Maður vaknaði við þær ánægjulegu fréttir í morgun að nærri tveir af hverjum þremur í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vildu ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og greiða síðan atkvæði um samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Gott mál og staðfestinga á þessu enn einn ganginn. Og ekki nóg með það, því þetta er nákvæmlega sama niðurstaða og í janúar fyrir nærri ári síðan og ekki nóg með heldur eru nú heldur fleiri nú sem vilja klára ferlið en voru í sömu könnun í september. Fínt og gleðilegt.

Þetta er staðfesting á því sem ég bloggaði um daginn um mmr-könnun. En ég benti á að þótt tölurnar væru aðrar en hjá Fréttablaðinu hefði þeim fjölgað verulega sem vildu klára aðildarumsóknina frá því að mmr gerði könnun í júni og að sama skapi hafði þeim fækkað verulega sem voru eindregnir í því að hætta við.

Staðfestan í könnunum Fréttablaðsins er mjög ánægjuleg. Þótt hún segi ekki mikið um hugsanlega afstöðu fólks til niðurstöðu samnings þegar hann liggur fyrir þá hef ég alltaf talið að þessi hópur er mögulegur já-hópur, hann verður ekki stærri en þetta en hann gæti auðveldlega (en ekki án baráttu) orðið vel yfir 50 prósentunum.

Og það er kannski þess vegna sem nei-sinnar sofa ekki (ekki frekar en bleikt.is).

En svo má líka spyrja hvort að skilningur þeirra á staðreyndum sé eitthvað líkur rökum þeirra fyrir nei-inu?
-

0 skilaboð: