Jón Bjarnason er hinn vænsti kall, það vita menn, en afskaplega verður samt gott að losna við hann úr ríkisstjórninni. Ekki bara vegna þess að hann vinnur einfaldlega gegn hagsmunum þjóðarinnar með því að vinna gegn samningi um aðild að Evrópusambandinu, heldur vegna þess að hann er mesti íhaldsmaðurinn í ríkisstjórninni. Gerir óskunda víða.
Jón er fulltrúi löngu liðinna tíma, fulltrúi sérhagsmuna og hagsmunagæslu hinna fáu. Tíma þar sem neytendur og almenningur skiptu minna máli en "atvinnuvegirnir". "Atvinnuvegirnir" skiptu öllu máli, og því reyndar haldið fram að það væri til að halda atvinnu í landinu, en í auknum mæli hefur það bara verið til að halda í völd og ríkidæmi. Það var aðalatriðið, atvinnan skipti ekki svo miklu.
En þessir atvinnuvegir sem Jón Bjarnason hefur staðið vörð um gegn hagsmunum almennings fara sífellt minnkandi. Fyrst og fremst landbúnaðurinn en vægi sjávarútvegsins fer líka minnkandi. Og það sem skiptir líka máli er að hið nýja sem við þurfum, störfin sem við þurfum að skapa verða ekki til í sjávarútvegi. Þau verða enn síður til í landbúnaði, þau verða til annarsstaðar.
Þess vegna er gott að Jón er að fara. Það er í lagi að kveðja þennan tíma og kannski Jón haldi bara í hann hjá Hildibrandi í Bjarnarhöfn.
Það er líka gott mál að setja á laggirnar eitt stórt atvinnuvegaráðuneyti. Reynslan af því að stækka ráðuneytin er góð. Stærra ráðuneyti mun frekar líta á heildarmyndina og hvað kemur okkur almenningi best en ekki vera barátturáðuneyti hagsmunaaðilanna.
Það er líka svolítið einkennilegt að menn virðast kvarta yfir því að það eigi að fækka ráðherrum. Hefur það ekki verið keppikefli að gera það? Það er ekki mjög langt síðan að það voru 12 ráðherrar. Bara til að auðvelda formönnum stjórnmálaflokkanna að hafa menn góða.
Vilja menn fara aftur til þess (sem var reyndar bara um daginn þannig séð) þegar Guðni Ágústsson var landbúnaðarráðherra og ekkert annað? Örráðuneyti var það. En Guðni var fyndinn - svo sem. En viljum við ekki eitthað meira en það í stjórnsýslunni?
Svo þarf líka sterkt ráðuneyti til að semja um landbúnað við ESB svo bændur geti nýtt sér aðildina þegar þar að kemur.
-
0 skilaboð:
Sendu inn athugasemd