þriðjudagur, 20. desember 2011

Þingmenn

Afhverju verður það stórmál hvort vörn Íslands vegna Icesave-hörmungarinnar sé í forsvari Össurar Skarphéðinssonar eða Árna Páls Árnasonar?

Er það eitthvað sem þingmenn þurfa að hafa áhyggjur af? Er það það stærsta í Icesave í dag?

Nei auðvitað ekki. Þetta er bara bull mál. Eitt af þessum upphlaupum þingmanna sem halda áfram að draga þá niður á gólf trausts þjóðarinnar.

Það má skilja stjórnarandstöðuna sem greinilega reynir að nota þetta mál til að skapa úlfúð meðal stjórnarliða. En það er ekki hægt að skilja afhverju Guðfríður Lilja Grétarsdóttir gengst inn á að hjálpa stjórnarandstöðunni í því. Óskiljanlegt eiginlega. Er það bara Evrópusambandsaðildarumsóknarandúðin sem kemur svona fram? Ég veit það ekki og skil það ekki.

En þótt maður skilji að stjórnarandstaðan vilji skapa úlfúð meðal stjórnarliða þá er það nú ekki beint framkoma þroskaðra stjórnamálamanna að standa í slíku. Eru þingmenn ekki núna unnvörpum að tala um að við þurfum nú að standa saman vegna Icesave og ekki fara í gömlu skotgrafirnar. Þetta segja þeir nú hæst sem héldu því fram fyrir síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu að Icesave myndi hverfa við nei-ið og að það færi aldrei fyrir dóm. Vilja víst sem minnst segja um hundruða milljarða áhættuna sem tekin var með nei-inu.

Það eykur ekki heldur traustið á þingmönnum.

Menn ættu að skammast sín, en gera það ekki.

Í staðinn fara þeir í herferð til að draga til baka málið gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Að margra mati af því að þeir óttast hvað muni koma fram í vitnaleiðslum. Þeir óttast sannleikann, óttast að upp um einhverja komist. Hverja? Ja, það fæst ekki úr því skorið ef þingheimur verður sér enn meira til skammar með því að draga ákæruna til baka. Nóg er nú samt.

Og hvernig má það vera að það var ekki hægt að ræða samsskonar ályktun um níumenningana. Það var ekki einu sinni rætt hvort að það mál ætti að fara á dagskrá. En nú er hlaupið til og öllu snúið á hvolf til að koma þingsályktunartillögu um að draga málið til baka á dagskrá Alþingis.

Eykur það traustið?

Eykur það traust á þingmönnum ef þeir vilja ekki halda ákærunni til streitu. Vilja menn ekki fá niðurstöðu í málið. Kannski verða yfirheyrslurnar það allar mikilvægasta í málinu öllu. Mun mikilvægari en niðurstaðan. Það sem skorti eftir hrunið og það sem vantaði til hliðar við rannsóknarskýrslu Alþingis var nefnilega opinberar yfirheyrslur, opnar yfirheyrslur, svo við sem höfum tapað milljónum á milljónir ofan fengjum að heyra það frá bankamönnum, útrásarvíkingum, eftirlitsaðilum og stjórnamálamönnum afhverju við glötuðum öllu þessu fé.

Ég vil fá að heyra það frá þeim sjálfum. Og já ég vil fá að heyra einsog nefnt hefur verið, hvort Davíð Oddsson bar skilaboð seðlabankastjórans breska um aðstoð áfram til Geirs Haarde eða ekki.
-

0 skilaboð: